Almennt, Aðalfundir
Comments (0)
Aðalfundur Efnís verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar 2010 á kaffihúsinu Sólon, efri hæð. Hefst kl. 17:30
Dagskrá:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf
Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2009
Gjaldkeri Efnís greinir frá bókhaldi Efnís
Ólympíukeppni í efnafræði
Kosning nýrra stjórnarmeðlima
Skoðunarmenn reikninga
2. Önnur mál
Endilega fjölmennum á aðalfund.
Kaffi og kökusneið í boði félagsins.
Kveðja,
Soffía formaður Efnís
Soffia @ January 25, 2010
Almennt
Comments (0)
Stjórn Efnafræðifélags Íslands óskar félagsmönnum og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Hafið það sem allra best um hátíðirnar.
Með jólakveðju,
Soffía formaður Efnís
Soffia @ December 24, 2009
Almennt, Ráðstefnur, Árshátíð
Comments (0)
Fimmta ráðstefna Efnís var haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Ráðstefnan var afar vel sótt og góður rómur var gerður að fyrirlestrum og veggspjöldum. Tæplega sjötíu manns sóttu ráðstefnuna og rúmlega sextíu snæddu hátíðarkvöldverð sem einnig var árshátíð félagsins.
Fjallað var um ráðstefnuna á vefnum student.is. Hér er tengill á fréttina.
Veitt voru verðlaun fyrir besta veggspjaldið og að féllu þau í skaut Manuelu Magnúsdóttur meistaranema í lífefnafræði við HÍ.
Um kvöldið var ýmislegt gert til skemmtunar. Ingvar Árnason flutti skemmtilegt erindi og Sigurður Smárason sýndi efnafræðitöfrabrögð með sprengjugenginu sínu.
Ráðstefnunefndin og stjórn Efnís þakka þátttakendum kærlega fyrir einkar ánægjulegan dag!
Soffia @ November 24, 2009