Dioxin: Jusenko byrlað dioxin eitur(?)
Almennt, Efnafræðifréttir Comments (0)
Úkraínski forsetaframbjóðandinn Viktor Júsénkó er nú á
heimleið frá Vín í Austurríki, eftir að hafa verið greindur með díoxíneitrun.
Hann segist vera hamingjusamur með að vera á lífi og hvetur til þess að opinber
rannsókn fari fram á eitruninni þegar að loknum kosningunum 26. desember.
Júsénkó var útskrifaður af Rudolfiner spítalanum í Vín í
dag. Hann gaf blaðamönnum friðarmerki út um glugga bifreiðar sinnar þegar hann
yfirgaf spítalann, klæddur appelsínugulum trefli, sem hefur orðið einkennismerki
kosningabaráttu hans. Hann átti að fljúga til Kíev seinna í dag.
Júsénkó hefur sakað úkraínsk yfirvöld um að hafa byrlað
honum eitur, en sagði blaðamönnum í dag að hann vildi ekki tjá sig um
ásakanirnar fyrr en að loknum kosningunum.
„Ég vil ekki að þetta mál hafi áhrif á úrslit kosninganna -
í hvora áttina sem er,” sagði Júsénkó. „Þetta mál mun þarfnast alvarlegrar og
langrar rannsóknar. Við skulum framkvæma hana eftir kosningar – nú er ekki rétti
tíminn.”
Efnís @ March 14, 2005