Efnís @ October 13, 2005 # Comments (0)
Næsti fyrirlestur í Undrum Veraldar verður haldinn í sal 1, Háskólabíói kl 14:00 :15. október -Guðmundur Eggertsson: Uppruni Lífs.Uppruni lífs er ein af mestu óráðnu gátum vísindanna. Fyrr á öldum héldu margir að líf gæti auðveldlega kviknað úr lífrænum eða ólífrænum efnasamböndum, en þegar þekking á lífverum jókst á 20. öld varð ljóst að jafnvel [...]
Sjá allt
Efnís @ October 10, 2005 # Comments (0)
Um daginn voru veitt Nóbelsverðlaun í efnafræði fyrir árið 2005. Verðlaunin voru veitt fyrir þróun á gagnkvæmum frumefnaskiptum (e. Development of the metathesis method in organic synthesis). Þrír vísindamenn, einn Frakki og tveir Bandaríkjamenn, skiptu verðlaununum jafnt milli sín. Tenglar um nóbelsverðlaun: Frétt um verðlaunin á mbl.is Almennt um nóbelsverðlaun Fræðileg umfjöllun um verðlaunaverkefnið (pdf -skjal) Listi [...]
Sjá allt
Efnís @ October 6, 2005 # Comments (0)
Eðlisfræðifélag Íslands og Raunvísindadeild Háskóla Íslands standa fyrir fyrirlestraröðinni Undur Veraldar í tilefni þess að árið 2005 er ár eðlisfræðinar. Fyrirlestrarnir eru haldnir í sal 2 í Háskólabíói klukkan 14:00 á laugardögum. Næsti fyrirlestur er sem hér segir: 8. október - Brynjar Karlsson: Eðlisfræði í heilbrigðisgeiranum Farið verður í ferðalag um eðlisfræðilandið í leit að [...]
Sjá allt