Aðalfundur á fimmtudaginn
Efnís @ February 28, 2006 # Comments (0)
Munið aðalfund Efnís fimmtudaginn 2. mars kl. 17:15 á Thorvaldsen bar. Vonandi sjáum við sem flesta p.s. árshátíðin verður 24. mars Kveðja, Stjórnin
Efnís @ February 28, 2006 # Comments (0)
Munið aðalfund Efnís fimmtudaginn 2. mars kl. 17:15 á Thorvaldsen bar. Vonandi sjáum við sem flesta p.s. árshátíðin verður 24. mars Kveðja, Stjórnin
Efnís @ February 23, 2006 # Comments (0)
Guðmundur Hrafn Guðmundsson, Líffræðistofnun Háskólans , flytur erindið: Bakteríudrepandi peptíð í ónæmiskerfi okkarÚtdráttur: Bakteríudrepandi peptíð eru mikilvæg varnarefni í ónæmiskerfi okkar og má líta á þau sem okkar innbyggðu fúkkalyf. Megin gena fjölskyldur bakteríudrepandi peptíða í spendýrum eru tvær: cathelicidin og defensin. Samband hýsils og baktería þar sem peptíðin gegna megin hlutverki verður megin efni þessa [...]
Efnís @ February 22, 2006 # Comments (0)
Raunvísindaþing verður haldið í Öskju 3. og 4. mars næstkomandi. Á heimasíðu þingsins stendur að markmið þingsins sé að kynna rannsóknir í raunvísindum við Háskóla Íslands og tengdar stofnanir. Boðið verður upp á erindi, bæði á íslensku og ensku, og einnig munu veggspjöld hanga uppi. Efnafræðingar, sem og aðrir áhugasamir um raunvísindi, eru hvattir [...]
Efnís @ February 21, 2006 # Comments (0)
Fimmta landskeppnin í efnafræði var haldin í morgun víðs vegar um landið. Nemendur á þriðja ári í efnafræði við Háskóla Íslands semja spurningar og fara yfir úrlausnir. 12-14 efstu keppendunum verður boðið að taka þátt í úrslitakeppni sem fer fram 11.-12. mars næstkomandi. Úrslitakeppnin er bæði fræðileg og verkleg. Fjórum nemendum verður síðan boðið að [...]
Efnís @ February 10, 2006 # Comments (0)
Stjórn Efnís leggur til að 12. grein verði bætt við lög félagsins. Tillagan er eftirfarandi: Heimilt er að stofna deildir innan félagsins með samþykki stjórnar. Allar deildir skulu starfa samkvæmt 2. grein laga Efnafræðifélags Íslands. Allir félagsmenn í Efnafræðifélagi Íslands hafa rétt til þátttöku í deildum félagsins. Stjórnin skal skipa undirbúningsstjórn sem heldur stofnfund deildarinnar. [...]
Efnís @ February 9, 2006 # Comments (0)
Aðalfundur Efnafræðifélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 2. mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn á Thorvaldsen bar (eins og í fyrra) og hefst hann klukkan 17:15. Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórn Efnís gerir eina lagabreytingartillögu sem afgreiða þarf á fundinum. Breytingartillagan fjallar um undirfélög og stofnun þeirra. Boðið verður upp á léttar veitingar. Aðalfundurinn [...]
Efnís @ February 9, 2006 # Comments (0)
Ýmislegt er framundan hjá Efnafræðifélagi Íslands á næstu vikum og mánuðum. Aðalfundur félagsins verður haldinn í byrjun mars (sjá auglýsingu á síðunni) og hin margrómaða árshátíð Efnís verður haldin í lok mars. Í september verður síðan haldin ráðstefna Efnafræðifélagsins en þetta verður í 4. sinn sem hún er haldin. Undirbúningur fyrir ráðstefnuna er þegar hafinn. [...]