Efnís @ March 21, 2006 # Comments (0)
Helgina 11. og 12. mars síðastlliðinn fóru fram úrslit í 5. landskeppninni í efnafræði. Keppt var bæði í fræðilegum og verklegum hluta. Sigurvegari var Tómas Pálsson, MR. Tómas var einnig hlutskarpastur í verklega hluta keppninnar en Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson, MH, var hæstur í fræðilega hlutanum. Röð
keppenda var eftirfarandi:
1. Tómas Pálsson, MR
2. Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson, MH
3. [...]
Sjá allt
Efnís @ March 14, 2006 # Comments (0)
Félagaskrá Efnafræðifélags Íslands er nú að finna á vefnum (vinstra megin). Þar má sjá hverjir eru meðlimir í Efnís, heimilisföng og starfsheiti. Netföng meðlima eru ekki birt.
Stjórnin er að reyna að koma félagatalinu í skikkanlegt horf og opinber félagaskrá er liður í þeirri vinnu. Félagsmenn eru hvattir til að kíkja á skráningu sína og [...]
Sjá allt
Efnís @ March 8, 2006 # Comments (0)
Árshátíð Efnís föstudaginn 24. mars
Fyrsta árshátíð félagsins, sem haldin var í fyrra, heppnaðist framar vonum. Nú verður blásið til leiks á ný og er það von stjórnarinnar að enn fleiri láti sjá sig þetta árið. Árshátíðin verður haldin í Akoges salnum, Sóltúni 3. Eins og í fyrra verður boðið upp á skoðunarferð í fyrirtæki sem starfar [...]
Sjá allt
Efnís @ March 6, 2006 # Comments (0)
Aðalfundur Efnafræðifélags Íslands var haldinn á Thorvaldsen bar fimmtudaginn 2. mars. Enn var slegið fjöldamet – alls mættu 19 manns á fundinn en það er 19 % aukning frá því í fyrra
Fundurinn var átakalítill, helstu mál voru þau að lagabreytingartillaga stjórnarinnar var samþykkt og breytingar urðu á stjórninni. Einar Karl Friðriksson gaf ekki kost á sér til [...]
Sjá allt
Efnís @ March 1, 2006 # Comments (0)
5. Almenna landskeppnin í efnafræði fór fram þriðjudaginn 21. febrúar
2006. Alls tóku þátt 104 nemendur frá tólf framhaldsskólum. Sigurvegari
keppninnar var María Óskarsdóttir, Menntaskólanum í Reykjavík. Röð 14
efstu keppenda er eftirfarandi:
1. María Óskarsdóttir MR
2. Þórey María Maríusdóttir MR
3. Andri Vilberg Orrason MR
4. Marta Rós Berndsen MH
5. Halldór Berg Harðarson MR
6. Hrafnhildur Birna Þórsdóttir MH
7.-8. Tinna Daníelsdóttir MH
7.-8. Tómas Pálsson MR
9. Sigrún Þorsteinsdóttir MH
10. Guðrún [...]
Sjá allt