Þjálfun fyrir ólympíukeppni stendur sem hæst
Íslendingar senda nú í áttunda skipti sveit til þátttöku í alþjóðlegu Ólympíukeppninni í efnafræði sem fram fer í Cambridge á Englandi dagana 18.-27. júlí nk. Að lokinni 8. landskeppninni í efnafræði hafa fjórir menntaskólanemar verið valdir í sveitina, þeir Guðmundur Kári Stefánsson, MR, Helgi Björnsson, MH, Kristján Godsk Rögnvaldsson, MA og Sigtryggur Kjartansson, FSS.
Í Ólympíukeppninni, sem nú er haldin í 41. skipti, munu keppendurnir spreyta sig á bæði verklegum og fræðilegum þrautum, auk þess að skoða og kynnast bæði einum virtasta háskóla heims og öðrum afburðaungmennum frá
um 70 þjóðlöndum.
Vikurnar á undan keppninni munu þeir gangast undir þjálfun fyrir keppnina við Háskóla Íslands. Þjálfunaráætlunin, sem felst í fyrirlestrum, dæmareikningi og verklegum æfingum, er stutt en snörp og stendur yfir dagana 29. júní til 16. júlí.
Finnbogi Óskarsson og Erlendur Jónsson halda utan um liðið að þessu sinni og hafa þeir veg og vanda að öllum undirbúningi. Fleiri koma þó að þjálfun og alls eru kringum tíu manns sem skipta þjálfuninni með sér.
Hér er heimasíða Ólympíukeppninnar.
Soffia @ June 30, 2009