neros restaurant nj Buysofts C Software Downloads at Best Rates nero reloaded 6.6.0.8 reinstall demo guitar pro mac ACDSee Photo Editor 2008 download free trial of nero 7 nero 6 ultra edition demo ACDSee Photo Manager 2009 download free dvd burners nero nero 7.5 keygen Nero 8 Ultra Edition download nero 6.6 suite 3 lightscribe capturing template nero vision Ahead Nero 9 Reloaded download nero express vista update nero bootable cd linux Guitar Pro 5 MAC download papa nero mp3 nero 7 ultra edition cd key CodeGear RAD Studio 2009 Architect download nero 6 free ware

No Comments

Vel heppnuð ráðstefna um sameindakennsl

Almennt, Ráðstefnur Comments (0)

Ráðstefnan „Affinity 2009″ sem Alþjóðafélag um sameindakennsl  (e. International Society for Molecular Recognition, ISMR) stendur fyrir annað hvert ár, var haldin dagana 12. til 16. júlí á Háskólatorgi.

Þar var Dr. Ruedi Aebersold, prófessor í Zürich, veitt Pierce Affinity Award sem kostuð eru af fyrirtækinu Pierce sem nú er hluti Thermo Scientific samsteypunnar. Var Dr. Aebersold sérstaklega boðið til Íslands til að taka við verðlaununum. Var hann valinn af sérstakri valnefnd undir forsæti Meir Wilchek prófessors við Weizmann Institute of Science í Ísrael, eins af upphafsmönnum griptækninnar (affinity chromatography) og avidin-biotin kerfisins sem víða er notað í líftækni. Dr. Aebersold hélt síðar fyrirlestur á ráðstefnunni og var titillinn: “Systems Biology: Network of Interacting Molecules”.

Í lok ráðstefnunnar voru veitt verðlaun, Roche Younger Investigator Awards, til ungra vísindamanna sem kynntu rannsóknir sínar með fyrirlestrum eða veggspjöldum. Verðlaunin eru kostuð af fyrirtækinu Hoffmann-La Roche Ltd. Fyrstu verðlaun fyrir veggspjöld hlutu sameiginlega, þeir Haraldur Garðarsson og Sandip Shelke, báðir nemendur Snorra Þórs Sigurðssonar prófessors í lífrænni efnafræði við raunvísindadeild Háskóla Íslands. Titill verkefnis Sandips var “Nucleic acid receptor-ligand interactions studied by EPR spectroscopy”. Titill  verkefnis Haraldar var “Single nucleotide mismatch detection using fluoroside çf”. Meðal annarra sem hlutu viðurkenningu var Óttar Rolfsson doktorsnemi við Háskólann í Leeds á Englandi. Titill erindis hans var: “The MS2 genome is a dynamic scaffold for MS2 capsid assembly”.

Dagskrá ráðstefnunnar, útdrætti erinda og veggspjalda ásamt ljósmyndum má sjá á vefsíðu ráðstefnunnar http://www.affinity2009.hi.is/

Hér eru tvær myndir frá verðlaunaafhendingum:

 

Ruedi Aebersold , handhafi Pierce Award for Affinity; Hörður Filippusson, forseti ráðstefnunnar; Meir Wilchek; Gideon Fleminger, forseti ISMR

 

Roche Younger Investigator Award verðlaunahafar ásamt matsnefndinni.

Soffia @ September 16, 2009

Leave a comment

Login

Register