neros restaurant nj Buysofts C Software Downloads at Best Rates nero reloaded 6.6.0.8 reinstall demo guitar pro mac ACDSee Photo Editor 2008 download free trial of nero 7 nero 6 ultra edition demo ACDSee Photo Manager 2009 download free dvd burners nero nero 7.5 keygen Nero 8 Ultra Edition download nero 6.6 suite 3 lightscribe capturing template nero vision Ahead Nero 9 Reloaded download nero express vista update nero bootable cd linux Guitar Pro 5 MAC download papa nero mp3 nero 7 ultra edition cd key CodeGear RAD Studio 2009 Architect download nero 6 free ware

No Comments

Ráðstefna Efnís í nóvember – efnafræði og nýsköpun

Almennt, Ráðstefnur Comments (0)

5. ráðstefna Efnafræðifélags Íslands verður haldin 14.  nóvember á Hótel Loftleiðum.  Efna- og lífefnafræðingar eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri til að kynna rannsóknir sínar og nemenda sinna með veggspjöldum.  Þema ráðstefnunar verður Efnafræði og nýsköpun.

Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til 1. nóvember á netfangið efnis09@gmail.com. Ágrip erinda og veggspjalda skal senda á sama netfang.

Ráðstefnunni verður skipt upp í þrjár lotur, Líf- og Heilsutækni; Efnafræði og efnatækni; og Græn efnafræði (sjá dagskrá hér að neðan).

Ágrip skulu vera á bæði íslensku og ensku og rúmast á einni A4 síðu.

Standarnir sem halda munu upp veggspjöldunum setja ákveðnar skorður. Best er ef spjöldin verði í stærsta lagi í A0 og auðvitað standandi (hæðin mesta lagi 120 cm og breiddin í mesta lagi 90 cm).

Að lokinni ráðstefnunni, verður haldinn árshátíð Efnafræðifélags Íslands 2009 sem var frestað vegna óvissunar í þjóðfélaginu síðasta vetur.

Verð:

Meðlimur

Efnís

Ekki

meðlimur

BS nemar*

Ráðstefna + kvöldverður

10.800

14.900

8.000

Ráðstefna án kvöldverðar

6.400

8.000

2.500

Kvöldverður eingöngu

4.900

6.300

4.900

* Gegn því að BS nemar gerist aukaaðilar að félaginu.

Dagskrá:

10:10 – 12:00 Líf- og heilsutækni.

Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir,  Háskóli Íslands:  Bioprospecting: Efnaauðlegð í lífríki hafsins.

Gissur Örlygsson, NMI – Tækni:  Kítínafleiður og kalsíumfosföt til beingræðslu.

Tom Brenner,  Iceproteins:  Einangrun, notkun og eiginleikar þorskvöðva próteina.

Örfyrirlestrar úr völdum ágripum veggspjalda 1 & 2.

13:00 – 15:00  Efnafræði og efnatækni.

Sunna Ólafsdóttir Wallevik, Steyputækni:  Nýsköpun í steyputækni á Íslandi.
Páll Theodórsson, Háskóli Íslands:  Upphaf landnáms lesið með kolefnis-14 aldursgreiningum.

Ragnar Jóhannsson, Arctic Tilapia:  Efnafræði vatnsendurnýtingar í eldi hlývatnsfiska á Íslandi.

Örfyrirlestrar úr völdum ágripum veggspjalda 3-5.

15:00 – 16:00  Kaffihlé og veggspjaldakynningar.

16:00  Græn efnafræði.

Oddur Ingólfsson, Bíódísel hf:  Bíódísel á Íslandi.

Sigurbjörn Einarsson, Bláa lónið:  Fóðrun smáþörunga með CO2 jarðhitagasi.

Edda Sif Aradóttir, Háskóli Íslands: Föngun og förgun kolefnis – staðbundnar lausnir á hnattrænum vanda.

17:00 – 19:00  Hlé.

19:00 – 01:00  Árshátíð Efnafræðifélags Íslands. Veislustjóri, Soffía Sveinsdóttir.

Hér má nálgast auglýsinguna.

Soffia @ October 5, 2009

Leave a comment

Login

Register