Hvað er að gerast í Norður Atlantshafi?
Laugardaginn 20. febrúar kl. 13:00, flytur Jón Ólafsson, prófessor í
haffræði, erindið Sjór, súrnun og straumar.
Fyrirlesturinn verður í sal 132 í Öskju
(http://www.hi.is/node/3907) og þangað eru allir velkomnir!
Erindi Jóns er það síðasta í fyrirlestraröðinni Vísindaeyjan:
Landnám, loftslag og haf, sem haldin er í tilefni af 10 ára
afmæli Vísindavefsins.
Hægt er að hlusta á Jón segja frá erindinu hér:
http://visindavefur.hi.is/article.php?id=89
Og líka á Fasbók:
http://www.facebook.com/event.php?eid=308104702335&index=1
Soffia @ February 18, 2010