Bjórkvöld Efnís
Þann 29. apríl (fimmtudagur) næstkomandi klukkan 20:30 stendur efnafræðifélag Íslands fyrir bjórkvöldi á ,,skemmtistaðnum”/barnum Balthazar. Mun Efnís bjóða upp á bjór á meðan byrgðir (einn kútur) endast. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Margrét Geirsdóttir hjá Matís kemur til með að halda stuttan fyrirlestur sem ber titilinn: Lífvirknirannsóknir á Matís – staða og framtíð
Kveðja
Benedikt Ómarsson
Benedikt Ómarsson @ April 20, 2010
Ég biðst afsökunnar að hafa ekki notast við „bcc“ þegar ég sendi tilkynninguna til félagsmanna í tölvupósti.