Beno @ March 3, 2010 # Comments (0)
Aðalfundur Efnís var haldinn á Sólon 18. Febrúar síðastliðinn, mæting var ágæt.
Ný stjórn Efnís var kjörin en urðu á miklar mannabreytingar, nýja stjórn skipa:
Margrét Þorsteinsdótir
Formaður
Guðjón Andri Gylfason
Varaformaður
Benedikt Ómarsson
Ritari
Ómar Freyr Sigurbjörnsson
Gjaldkeri
Hörður Filipusson
Meðstjórnandi
Hrönn Ólína Jörundsdóttir
Varamaður
Ný stjórn þakkar þeirri fráfarandi vel unnin störf á síðasta starfsári og árum. Við viljum sérstaklega þakka þeim er hve lengst hafa setið [...]
Sjá allt
Soffia @ February 18, 2010 # Comments (0)
Laugardaginn 20. febrúar kl. 13:00, flytur Jón Ólafsson, prófessor í
haffræði, erindið Sjór, súrnun og straumar.
Fyrirlesturinn verður í sal 132 í Öskju
(http://www.hi.is/node/3907) og þangað eru allir velkomnir!
Erindi Jóns er það síðasta í fyrirlestraröðinni Vísindaeyjan:
Landnám, loftslag og haf, sem haldin er í tilefni af 10 ára
afmæli Vísindavefsins.
Hægt er að hlusta á Jón segja frá erindinu hér:
http://visindavefur.hi.is/article.php?id=89
Og líka [...]
Sjá allt
Soffia @ January 25, 2010 # Comments (0)
Aðalfundur Efnís verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar 2010 á kaffihúsinu Sólon, efri hæð. Hefst kl. 17:30
Dagskrá:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf
Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2009
Gjaldkeri Efnís greinir frá bókhaldi Efnís
Ólympíukeppni í efnafræði
Kosning nýrra stjórnarmeðlima
Skoðunarmenn reikninga
2. Önnur mál
Endilega fjölmennum á aðalfund.
Kaffi og kökusneið í boði félagsins.
Kveðja,
Soffía formaður Efnís
Sjá allt
Soffia @ December 24, 2009 # Comments (0)
Stjórn Efnafræðifélags Íslands óskar félagsmönnum og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Hafið það sem allra best um hátíðirnar.
Með jólakveðju,
Soffía formaður Efnís
Sjá allt
Soffia @ November 24, 2009 # Comments (0)
Fimmta ráðstefna Efnís var haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Ráðstefnan var afar vel sótt og góður rómur var gerður að fyrirlestrum og veggspjöldum. Tæplega sjötíu manns sóttu ráðstefnuna og rúmlega sextíu snæddu hátíðarkvöldverð sem einnig var árshátíð félagsins.
Fjallað var um ráðstefnuna á vefnum student.is. Hér er tengill á fréttina.
Veitt voru verðlaun fyrir besta veggspjaldið [...]
Sjá allt
Soffia @ November 2, 2009 # Comments (0)
5. ráðstefna Efnís verður haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum.
Við getum enn tekið við skráningum og ágripum. Fresturinn fyrir ágripin hefur verið framlengdur til 6. nóvember en hægt er að skrá sig á ráðstefnuna/árshátíðina fram í næstu viku.
Tilkynnið þátttöku á efnis09@gmail.com.
Breyting hefur orðið á dagskránni, Tom Brenner afboðaði sig vegna Japansferðar en í [...]
Sjá allt
Soffia @ October 7, 2009 # Comments (0)
Að þessu sinni hlutu þrír vísindamenn nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á byggingu og virkni ríbósóma.
Sjá nánar á heimasíðu nóbelsverðlaunanna.
Sjá allt
Soffia @ October 5, 2009 # Comments (0)
5. ráðstefna Efnafræðifélags Íslands verður haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Efna- og lífefnafræðingar eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri til að kynna rannsóknir sínar og nemenda sinna með veggspjöldum. Þema ráðstefnunar verður Efnafræði og nýsköpun.
Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til 1. nóvember á netfangið efnis09@gmail.com. Ágrip erinda og veggspjalda skal senda á sama netfang.
Ráðstefnunni verður [...]
Sjá allt
Soffia @ September 21, 2009 # Comments (0)
Fimmta ráðstefna Efnís verður haldin þann 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Þema ráðstefnunnar er “efnafræði og nýsköpun”. Fyrirlestrum er skipt niður á þrjár lotur sem allar tengjast nýsköpun: a) lífefnafræði, b) efnafræði, c) græn efnafræði.
Einnig gefst háskólanemendum, prófessorum og fyrirtækjum að kynna rannsóknir sínar, vörur, nýjungar eða annað tengt efnafræði með veggspjöldum. Veggspjöldin mega fjalla [...]
Sjá allt
Soffia @ September 16, 2009 # Comments (0)
Ráðstefnan „Affinity 2009″ sem Alþjóðafélag um sameindakennsl (e. International Society for Molecular Recognition, ISMR) stendur fyrir annað hvert ár, var haldin dagana 12. til 16. júlí á Háskólatorgi.
Þar var Dr. Ruedi Aebersold, prófessor í Zürich, veitt Pierce Affinity Award sem kostuð eru af fyrirtækinu Pierce sem nú er hluti Thermo Scientific samsteypunnar. Var Dr. [...]
Sjá allt