Benedikt Ómarsson @ April 20, 2010 # Comments (1)
Þann 29. apríl (fimmtudagur) næstkomandi klukkan 20:30 stendur efnafræðifélag Íslands fyrir bjórkvöldi á ,,skemmtistaðnum”/barnum Balthazar. Mun Efnís bjóða upp á bjór á meðan byrgðir (einn kútur) endast. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Margrét Geirsdóttir hjá Matís kemur til með að halda stuttan fyrirlestur sem ber titilinn: Lífvirknirannsóknir á Matís – staða og framtíð Kveðja Benedikt [...]
Sjá allt
Benedikt Ómarsson @ April 20, 2010 # Comments (0)
Stofu 158 í VR II á föstudögum kl 12:30 23. apríl Meistaraprófsfyrirlestur – M. S. seminar – Gunnar W. Reginsson Fjarlægðir og afstaða á DNA mæld með ósamgildri spunamerkingu og púlsaðri EPR spektróskópíu.- Distance and orientation measurements on DNA using non-covalent spin-labelling and pulsed EPR spectroscopy. 30. apríl Dr. Ingibjörg Harðardóttir, prófessor í Læknadeild, Heilbrigðisvísindasviði [...]
Sjá allt
Benedikt Ómarsson @ March 3, 2010 # Comments (0)
Aðalfundur Efnís var haldinn á Sólon 18. Febrúar síðastliðinn, mæting var ágæt. Ný stjórn Efnís var kjörin en urðu á miklar mannabreytingar, nýja stjórn skipa: Margrét Þorsteinsdótir Formaður Guðjón Andri Gylfason Varaformaður Benedikt Ómarsson Ritari Ómar Freyr Sigurbjörnsson Gjaldkeri Hörður Filipusson Meðstjórnandi Hrönn Ólína Jörundsdóttir Varamaður Ný stjórn þakkar þeirri fráfarandi vel unnin störf á [...]
Sjá allt
Soffia @ February 18, 2010 # Comments (0)
Laugardaginn 20. febrúar kl. 13:00, flytur Jón Ólafsson, prófessor í haffræði, erindið Sjór, súrnun og straumar. Fyrirlesturinn verður í sal 132 í Öskju (http://www.hi.is/node/3907) og þangað eru allir velkomnir! Erindi Jóns er það síðasta í fyrirlestraröðinni Vísindaeyjan: Landnám, loftslag og haf, sem haldin er í tilefni af 10 ára afmæli Vísindavefsins. Hægt er að hlusta [...]
Sjá allt
Soffia @ January 25, 2010 # Comments (0)
Aðalfundur Efnís verður haldinn fimmtudaginn 18. febrúar 2010 á kaffihúsinu Sólon, efri hæð. Hefst kl. 17:30 Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2009 Gjaldkeri Efnís greinir frá bókhaldi Efnís Ólympíukeppni í efnafræði Kosning nýrra stjórnarmeðlima Skoðunarmenn reikninga 2. Önnur mál Endilega fjölmennum á aðalfund. Kaffi og kökusneið í boði félagsins. Kveðja, Soffía formaður [...]
Sjá allt
Soffia @ December 24, 2009 # Comments (0)
Stjórn Efnafræðifélags Íslands óskar félagsmönnum og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hafið það sem allra best um hátíðirnar. Með jólakveðju, Soffía formaður Efnís
Sjá allt
Soffia @ November 24, 2009 # Comments (0)
Fimmta ráðstefna Efnís var haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Ráðstefnan var afar vel sótt og góður rómur var gerður að fyrirlestrum og veggspjöldum. Tæplega sjötíu manns sóttu ráðstefnuna og rúmlega sextíu snæddu hátíðarkvöldverð sem einnig var árshátíð félagsins. Fjallað var um ráðstefnuna á vefnum student.is. Hér er tengill á fréttina. Veitt voru verðlaun fyrir [...]
Sjá allt
Soffia @ November 2, 2009 # Comments (0)
5. ráðstefna Efnís verður haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Við getum enn tekið við skráningum og ágripum. Fresturinn fyrir ágripin hefur verið framlengdur til 6. nóvember en hægt er að skrá sig á ráðstefnuna/árshátíðina fram í næstu viku. Tilkynnið þátttöku á efnis09@gmail.com. Breyting hefur orðið á dagskránni, Tom Brenner afboðaði sig vegna Japansferðar en í staðinn [...]
Sjá allt
Soffia @ October 7, 2009 # Comments (0)
Að þessu sinni hlutu þrír vísindamenn nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á byggingu og virkni ríbósóma. Sjá nánar á heimasíðu nóbelsverðlaunanna.
Sjá allt
Soffia @ October 5, 2009 # Comments (0)
5. ráðstefna Efnafræðifélags Íslands verður haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Efna- og lífefnafræðingar eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri til að kynna rannsóknir sínar og nemenda sinna með veggspjöldum. Þema ráðstefnunar verður Efnafræði og nýsköpun. Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til 1. nóvember á netfangið efnis09@gmail.com. Ágrip erinda og veggspjalda skal senda á sama netfang. [...]
Sjá allt