Soffia @ November 24, 2009 # Comments (0)
Fimmta ráðstefna Efnís var haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Ráðstefnan var afar vel sótt og góður rómur var gerður að fyrirlestrum og veggspjöldum. Tæplega sjötíu manns sóttu ráðstefnuna og rúmlega sextíu snæddu hátíðarkvöldverð sem einnig var árshátíð félagsins.
Fjallað var um ráðstefnuna á vefnum student.is. Hér er tengill á fréttina.
Veitt voru verðlaun fyrir besta veggspjaldið [...]
Sjá allt
Soffia @ November 2, 2009 # Comments (0)
5. ráðstefna Efnís verður haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum.
Við getum enn tekið við skráningum og ágripum. Fresturinn fyrir ágripin hefur verið framlengdur til 6. nóvember en hægt er að skrá sig á ráðstefnuna/árshátíðina fram í næstu viku.
Tilkynnið þátttöku á efnis09@gmail.com.
Breyting hefur orðið á dagskránni, Tom Brenner afboðaði sig vegna Japansferðar en í [...]
Sjá allt
Soffia @ October 5, 2009 # Comments (0)
5. ráðstefna Efnafræðifélags Íslands verður haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Efna- og lífefnafræðingar eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri til að kynna rannsóknir sínar og nemenda sinna með veggspjöldum. Þema ráðstefnunar verður Efnafræði og nýsköpun.
Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til 1. nóvember á netfangið efnis09@gmail.com. Ágrip erinda og veggspjalda skal senda á sama netfang.
Ráðstefnunni verður [...]
Sjá allt
Soffia @ September 21, 2009 # Comments (0)
Fimmta ráðstefna Efnís verður haldin þann 14. nóvember á Hótel Loftleiðum. Þema ráðstefnunnar er “efnafræði og nýsköpun”. Fyrirlestrum er skipt niður á þrjár lotur sem allar tengjast nýsköpun: a) lífefnafræði, b) efnafræði, c) græn efnafræði.
Einnig gefst háskólanemendum, prófessorum og fyrirtækjum að kynna rannsóknir sínar, vörur, nýjungar eða annað tengt efnafræði með veggspjöldum. Veggspjöldin mega fjalla [...]
Sjá allt
Soffia @ September 16, 2009 # Comments (0)
Ráðstefnan „Affinity 2009″ sem Alþjóðafélag um sameindakennsl (e. International Society for Molecular Recognition, ISMR) stendur fyrir annað hvert ár, var haldin dagana 12. til 16. júlí á Háskólatorgi.
Þar var Dr. Ruedi Aebersold, prófessor í Zürich, veitt Pierce Affinity Award sem kostuð eru af fyrirtækinu Pierce sem nú er hluti Thermo Scientific samsteypunnar. Var Dr. [...]
Sjá allt
Efnís @ December 10, 2007 # Comments (0)
Myndir frá ráðstefnunni eru hér. Undirrituð gafst upp á að setja myndirnar inn á síðuna….
Stjórnin ætlar líklega að skipta um vefkerfi þar sem núverandi kerfi, Mambo, er frekar þungt í vöfum og óþarflega flókið (sbr myndirnar).
Komnar eru dagsetningar á viðburði á næsta ári. Vinsamlegast takið eftirfarandi daga frá:
7. febrúar (fimmtudagur): Aðalfundur Efnís
7. mars (föstudagur): Árshátíð [...]
Sjá allt
Efnís @ November 18, 2007 # Comments (0)
Fjórða ráðstefna Efnís var haldin á Hótel Loftleiðum í gær. Flutt voru níu áhugaverð erindi sem öll voru tengd efnafræði og orkufrekum iðnaði á einn eða annan hátt. Framhaldsnemar og leiðbeinendur þeirra kynntu rannsóknir sínar og alls voru 14 veggspjöld til sýnis.
Þátttaka var vonum framar en alls voru gestir rúmlega fimmtíu sem er aðeins meira [...]
Sjá allt
Efnís @ November 8, 2007 # Comments (0)
Skráningarfrestur á ráðstefnuna sjálfa hefur verið framlengdur til 14. nóvember!
Svana tekur sem fyrr við skráningum á netfangið svana(hjá)hi.is
Dagskráin hefur verið uppfærð og hér er nýjasta útgáfan:
Dagskrá:
9:30 Mæting, ráðstefnugögn afhent
10:00 Setning ráðstefnunar, Sigurður V. Smárason formaður Efnís
10:10 Jarðvarmi, umsjón: Már Másson
Útrás í nýtingu jarðvarma – Lárus Elíasson (Enex)
Hreinsun útblásturs frá jarðvarmavirkjunum – Teitur Gunnarsson (VGK-Hönnun)
Jarðefnafræði [...]
Sjá allt
Efnís @ October 17, 2007 # Comments (0)
Efnafræði og orkufrekur iðnaður
Fjórða ráðstefna Efnafræðifélags Íslands
Dagsetning: 17. nóvember 2007
Staðsetning: Hótel Loftleiðir, Reykjavík
Dagskrá:
9:30 Mæting, ráðstefnugögn afhent
10:00 Setning ráðstefnunar, Sigurður V. Smárason formaður Efnís
10:10 Lota 1: Jarðvarmi, umsjón: Már Másson
Útrás í nýtingu jarðvarma – Lárus Elíasson (Enex)
Hreinsun útblásturs frá jarðvarmavirkjunum – Teitur Gunnarsson (VGK-Hönnun)
Jarðhitaboranir og jarðefnafræði – Þráinn Friðriksson (ISOR)
12:00 Hádegismatur á Hótel Loftleiðum
13:00 Lota 2: Stóriðja, [...]
Sjá allt
Efnís @ August 21, 2007 # Comments (0)
Efnís hefur staðið fyrir þremur ráðstefnum; í Reykholti 2000, á Akureyri 2002 og á Nesjavöllum 2004. Samkvæmt hefðinni hefði átt að vera ráðstefna 2006 en stjórn Efnís ákvað að fresta ráðstefnunni um eitt ár. Ástæðan er sú að Raunvísindaþing hefur verið haldið á vegum HÍ síðustu ár (2004 og 2006) og þingið hefur svalað ráðstefnuþörf [...]
Sjá allt